hitinn í helvíti..
26.07.2007 13:05:32 / flamegirl

Ferðalagið mikla...

jæja það er kannski komin tími til að drita niður nokkrum orðum um stöðu okkar í ferðalaginu mikla..

NY var náttúrulega geggjuð upplifun, hraðinn þar er rosalegur...manni finnst hraðinn og fólkið mikið í London, en NY er sko mun öflugra dæmi..

við fenguð alveg geggjað veður, en föttuðum ekki alveg fyrsta dagin að bera á okkur sem að varð til þess að ég brann töluvert á öxlunum en það er allt að koma til..

við fórum í svona opin rútubíl, sem að er svona skoðunarferð um borgina, eyddum alveg töluverðum tíma í því og sáum alveg hrikalega mikið..fórum m.a í gegnum Harlem, soho, kínahverfið og canal street..rúntuðum í gegnum allan miðbæinn og sáum eins og trump tower, hús sameinuðuþjóðanna, chrystler bygginguna og empire state bygginguna..fórum hjá central park pg fl fl..

við tókum þyrluflug í Ny sem að var algjörlega geðveikt, þar sáum við yfir allt..tókum vatnataxa yfir Hudson ánna, út að borða á hard rock, skoðuðum vaxmyndasafnið með fræga fólkinu og löbbuðum á times sqare..ji minn eini hvað þetta var klikkað..

svo helliringdi á okkur síðasta daginn og því notuðum við hann bara í að borða rándýran morgunmat í rólegheitunum og fara út á flugvöll..þar lentum við reyndar í frekar miklu veseni því fluginu var seinkað 3 sinnum minnir mig og endaði svo á því að verða frestað...kræst hvað gera menn þá, en svo var hætt við að fresta, svo aftur frestað og svo fékkst loks vél frá Boston til að fara me okkur..þá vorum við bara búin að bíða 8 klukkustundir á flugvellinum...úff það

við komuma í orlando var fengið sér bílaleigubíl með gps og brunað af stað, það gékk nú eiginlega bara alveg ljómandi vel, en ég  viðurkenni þó að ég var frekar hrædd..

jæja kem með frekari info seinna..er á leið í magic kingdom:0

kv ings og logó

þið verðið að sætta ykkur við hráar info núna því ég hef bara ekki tíma til að skrifa þetta betur


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 11:20:24 / flamegirl

Draumar!!

Hvað er málið með að dreyma fiska??

ég tek alltaf upp á því annaðslagið að dreyma fisk, eða fiska..og það koma alltaf svona 2-3 draumar með mjög stuttu millibili, núna komu 2 draumar í röð...

sá fyrri var þannig að ég var að veiða, en var ekkert vel við það..enda vorkenni ég fiskunum:) nema ég fékk mjög fljótlega fisk, en þegar ég var komin með hann efst á stöngina þá sá ég að hann rétt hékk á önglinum og var bara frekar sátt með það, því ég ætlaði eiginlega bara að sleppa honum..

nema logi vildi taka hann að landi, svo þegar við vorum búin að losa hann, sem að varla þurfti að gera þá vildi ég skila honum aftur, en logi tók það ekki í mál og tók hníf og stakk hann!! nú svo til að bæta það þá skar hann af honum tálknin, eða reyndar bara annað svo ég muni!! en mér fannst það nú alveg nóg..

svo var hinn draumurinn í nótt..ég var að fara út að skemmta mér, og var reyndar komin á Kaffi Ak..ég fer strax inn á bað til að lagfæra eitthvað andlitið en þá kemur ung stelpa og er eitthvað að vandræðast því það sé stelpa inn á næsta baði að fæða barn..ég stekk upp til að hjálpa henni því ég hafði víst gert þetta áður..

nema barnið fæðist án allra vandræða og ég tók á móti því, lítil stelpa, svo var ég eitthvað að sjúga slím úr nefinu á því en á í vandræðum með eitthvað svona frekar stórt "hor" þannig að ég ákvað bara að taka í það með höndunum..nema hvað haldið þið, var þetta ekki bara gullfiskur!! upp í nefinu á barninu..gargg frekar stórar nasir þar:)

en ég náði að toga hann út um nefið og hvað hann var bara sprell lifandi og synti burt, jahhh bara í loftinu því ekki vorum við neðansjávar:)

draumaráðningarfólk...þetta merkir??

heyrði einhverntíman að fiskar væru merki um tilfinningarlíf fólks,? ætli ég sé þá hrædd um að loga langi að drepa mig..? eða á hann kannski eftir að drepa mig, andlega?

hehe

jæja annars er bara það að frétta að ég er heima með gabó, hann er búin að vera lasinn síðan á júró og kosningarkvöldið góða, en hann tók það greinilega ekki í mál að mamma færi út að skemmta sér þannig að hann tók upp á því að verða veikur, þannig að mammslan þurfti sko að mæta stífmáluð í djammgallanum aftur til dallas að sækja gullið sitt og fara með það á slysó:(

en það kom ekkert alvarlegt út úr því svo sem, en hann er samt enn veikur!

stefnan er reyndar tekinn á árshátíð lögreglumanna í kvöld, sem að er haldinn "gegn" mínu samþykki:) í ólafsfyrði..hrikalegt að fara að mæta á samkomu í leredabæ:) allavega sjáum hvað verður úr því, en logi er búin að vera að skipuleggja þetta eins og geðsjúklingur núna í einhverja daga!!

af Amelíu er fínt að frétta, hún er búin að vera í vistun núna með henni Bertu sinni og finnst það bara alveg ljómandi, svo er hún að standa sig rosalega vel í þeim prófum sem að við vitum útkomuna úr..ekkert skrítið, ekki dóttir mín fyrir ekkert:)

jæja bið að heilsa í bili

kv Flames


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 15:56:57 / flamegirl

frægð..

jæja góðir rithöfundar halda víst ekki aðdáendum sínum með því að hætta að gefa út frábært efni:) nema náttúrulega þeir sem að eiga sér dygga aðdáendur sem að lesa þá bara aftur sömu greinarnar til að fá þörfum sínum fullnægt!!

 þannig að ég vona að þið hafið ekki gefið mig upp á bátin og bara lesið gamlar færslur, svona á meðan ég var föst í stíflu...

jahh ég er búin að vera í átaki núna í næstum 3 vikur, og það gengur bara nokkuð vel, um 4 kíló farinn..:) júhú ekki leiðinlegt það..

ég sit hérna við tölvuna núna þann 1 mai, sveitt með útvarpið í eyrunum því ég var að koma inn frá því að taka eitt stykki hlaup úti í góða veðrinu..og já já ef að þér klígar við þessum dugnaði mínum þá segja allar spár að það sé vegna löngunnar þinnar lesandi góður til að fara að hrissta á þér rassinn og taka smá sprikl!!

allavega, brúðkaupsplön eru sem áður, bara í góðum farvegi..ég bíð alltaf eftir stressinu..en róleg róleg..það kemur!! svona allavega ef að ég þekki mig rétt:)

jæja ég þarf að komast í sturtu..lofa að skrifa frekari fréttir á morgun, eða hinn:)

bæbb Flames


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 22:11:52 / flamegirl

........

ahh jæja ég var nú búin að skrifa langa og flotta færslu fyrir um 2 dögum en svo þegar ég var að fara að pósta henni inn þá eyddist allt út, ég nennti sko alls ekki að gera nýja:)

en hér kemur eitthvað af fréttum!

ég vil nú byrja á því að segja að mér finnst nú lélegt að það hafi bara 4 kommentað í síðustu færslu, svona þar sem að ég veit alveg að það eru fleiri en það sem að lesa, en kannski á ég bara svona mikið af leyninlegum aðdáendum sem að vilja ekki láta vita af sér:) en væru þeir þá ekkert leynilegir lengur..

allavega þetta orðatiltæki MILF sem að ég spurði um síðast, og kom náttúrulega í ljós það sama og mig grunaði, eða að fæstir vissu hvað þetta þýddi, það er víst eitthvað á þessa leið...mom i like to fuck, og þótti ég mjög leim að þekkja ekki þetta orðatiltæki..en greinilega voru þá fleiri eins leim og ég:)

jæja nú byrjar bara átak strax á morgun, ég er búin að vera að borða eins mikið og ég get alla páskana því mér líður eins og ég sé að fara að deyja.hehe ekkert nammi, gos né neitt svo djúsí djúsí..grát

á maður þá að fara að byrgja sig upp af kotasælu, gúrkum, skyri og próteinstöngum? vievieive hljómar rosa spennandi, eða svona næstum því..

jæja ég kíkti aðeins á lífið í gær, varð svona nokkuð drukkinn, enda drekkandi á tóman maga..en skemmti mér nú samt bara alveg ljómandi vel...dansaði af mér rassgatið:) er það ekki tilgangurinn með djamminu? dansinn...elska að dansa!

jæja þá má alveg með sanni segja að ég sé frekar drusluleg í dag svo ég hef þetta ekkert lengra og fer að koma mér í bólið..

nætí næt

flames

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 21:34:47 / flamegirl

dadaddara da dadadara..syngist með tilþrifum:)

ahh jæja kæra pakk!!

nú er farið að styttast óheyrilega mikið í að allt þetta merkilega skelli á! ójá brúðkaup eftir 105 daga:)

utanlandsferð eftir 111 daga:) sjitt skitt..

en helgin er viðburðalítil hjá mér, en viðburðamikil hjá tilvonandi manninum mínum!

það er búið að vera landsmót lögreglumanna í fótbolta hérna á akureyri og hefur minn maður staðið í ströngum undirbúning fyrir það, ásamt því að keppa í boltanum og taka 2 kvöld af djammi:) sá verður þreyttur þegar það þarf að mæta á 12 tíma næturvakt á morgun:)

það er því óhætt að segja að bærinn sé fullur og rúmlega það af löggum:) í líklegast misgóðu ástandi..hehe

annars er ekkert merkilegt í sjálfu sér að frétta...

amelía fer til akranes á morgun og verður fram á miðvikurdag..

en ég ætla að gera smá könnun!

allir sem að lesa bloggið eru tilneyddir til að svara og ef ekki verðið þið elt uppi og drepinn!! fæ sérsveitina í það..OK

en í dag fékk ég að heyra ákveðið orðatiltæki og þótti víst mjög leim manneskja að kannast ekki við þetta tiltekna orðatiltæki:) nú vil ég vita hvort að þið kæru lesendur þessa merkilega og hávísindarlega bloggs kannist við það..?

en það er orðið  eða orðatiltækið  MILF!!?

endilega verið jafn púkó og ég og segið að þið þekkjið það ekki..

kem með það næst hvað það þýðir:) svona þar sem að ég er viss um að notkun þess er ekki jafn útbreidd og fólk vill meina og fæstir þekkja það'

kv FlameGirl


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 22:08:34 / flamegirl

jaríjarí

jæja góðann daginn kæru vinir..og kannski óvinir? hvað veit maður..hheeh

úff ég hef verið hræðilega löt að drita niður nokkrum línum undanfarið..en ég ætla að reyna að stikla á því helsta sem að hefur gerst síðustu daga..

sko ég ákvað að halda áfram í póstinum og hætta við að taka vinnuna hjá 118, það var bara vegna þess að mér líkar svo vel hjá póstinum og vinnutíminn og frjálsræðið er náttúrulega snilldin ein, yfirleitt búin fyrir og um hádegi en samt á launum til 16:15:)

það er búið að vera slatti að gera í póstinum og ég viðurkenni það alveg að í lok vikunnar að þá er kroppurinn orðinn lúinn..en samt svona á góðan hátt

ég fór suður um síðustu helgi að hitta lækni og tók árshátíð í leiðinni:) en ekki hvað, maður fer ekki í borgina og sleppir djammi, svona þar sem að djammið á akureyri er nú ekki eitthvað til að hrópa húrra fyrir..

allavega fór með eddu og þeim á árshátíð hjá deildinni hennar í háskólanum og skemmti mér svona líka ljómandi, fórum á oliver á eftir..svo hentist ég bara heim aftur á laugardeginum enda grislingar að bíða eftir mér heima:)

logi er búin að vera í borginni núna alla þessa viku, hann er á 2 námskeiðum á vegum lögreglunnar og kemur heim á morgun..viðurkenni nú alveg að ég sakna hans mikið og er harðákveðin í því að verða aldrei ALDREI einstæð aftur...get svo svarið það að ég mun handjárna hann við mig ef að hann mun einhverntíman gera sig líklegan til að fara:)

brúðkaupsundirbúningur gengur vel, allt á rólegu nótunum..erum komin með kokk, boðskortin eru í prentun ásamt sérvettum..svo er verið að kanna áfengisstöðuna..

þetta fer allt að smella saman, allavega svona þetta helsta..það er komið gróflega á blað hverjir eru boðnir og svo á maður eftir að ákveða borðaskipan og allt það..

annars er ég lúinn núna, ætla að glápa á house og fara að lúlla mér..

knús FlameGirl


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 17:20:32 / flamegirl

2500:)

jebbadúrí 2500 heimsóknir takk fyrir, hver skyldi hafa verið sá heppni:) engin annar en ég sjálf..múhahah  þess vegna fæ ég verðlaunin bara sjálf:)

en það eina sem að ég hef fram að færa er þetta...ÉG ER FEIT!!

 ég kæri mig ekki um nein einustu komment sem að hljóða á þann veg..nei láttu ekki svona ingibjörg..og blablabla

rakst á mynd af mér á netinu og hólímófó..heppin að ég komst fyrir á myndinni bara..gargg

jæja nú er ég farin að grenja

over and out!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 00:07:46 / flamegirl

langar svo margt!!

mig langar í stærra hús, að á að vera með fleiri herbergjum, stærri stofu og stærra eldhús..!!

mig langar líka rosalega mikið til að verða svona pínu þekkt, fræg á íslandi..allavega það:) örugglega pínu gaman að láta fólk glápa á mann og pæla hvort að þetta sé stjarnan úr þarna sjónvarpinu:) já og auðvitað vera þá stjarnan..

svo langar mig líka að fara í klippingu og litun, er bara ekki að tíma því núna..

mig langar að fá að prófa að tala inn á teiknimynd, það hefur alltaf verið draumur..alveg sama þó að það yrði ekkert notað eða neitt, bara það að fá að prófa:)

þar sem að ég er ferðasjúk að þá langar mig að skella mér í vikuferð til sólarlanda, helst á morgun..bara taka famelíið í vikufrí frá vetri og kulda klakans..

langar líka að prófa að flytja til útlanda, alveg sama þó að það yrði bara danmörk..það er allavega útlönd!

svo langar mig að ákveða eða réttarasagt að geta ákveðið hvað ég á að læra og hvar!! og mig langar að brillera í mínu námi:)

þar sem að ég held að ég sé líka svolítið athyglissjúk að þá langar mér pínu að námið mitt sé eftirsótt og komi mér eitthvað áfram, á merkilega staði og að ég nái að gera merkilega hluti...:) svona sem að fleiri en mamma og pabbi vita af..

langar líka rosalega í svona hjálparstarf..fara í 6 vikur til s-ameríku og sinna sjálfboðarstörfum...

langar líka að það séu fleiri en 1-2 flíkur í fataskápnum mínum sem að koma til greina til hversdagsfatnaðar..

og já langar að eiga einhver hrikalega kúl nærföt..

svo langar mig auðvitað að verða grönn, svona eins og 7 kg léttari...allavega 5...nenni bara svo lítið að gera í því

annars þá langar mig miklu meira..nenni bara ekki að pikka meira svo ég segi góða nótt með von í hjarta að allir draumar mínir muni rætast:)

kv FlameGirl

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 16:01:22 / flamegirl

LIFANDI..

já já ég er lifandi, bara löt:)

málið er að mér finnst ég í rauninni ekkert hafa neitt mikið eða merkilegt að segja núna, allt bara svona same old, same old..

Logi er alveg á fullu í að fylgjast með öllu því heitasta í orlando og reyna að finna út hvað er MUST SEE hvar er best að vera..svona upp á að þurfa ekki að keyra langar vegalengdir bara til að kíkka á svo sem eins og einn pöbb:) já og svona eins og eitt mOLL eða svo..svona fyrir mig og Eddu:) múhahaha það verður tekinn smá MInní fílingur á þetta svona undir lokinn..við förum nú ekki að fara með MINNa magn út úr landinu en lög gera ráð fyrir, eða eins og um 4 ferðatöskur 23kg stk...hohohohoho

annars langar mig mest að verða rík núna STRAX og panta mér bara gistingu á flottu hóteli þarna, svona eins og t.d Hard ROCK hótel, usss kostar bara um 200þús krónur 10 dagar..haha en vá hvað það er mega flott EEEnnn aðeins pínu of dýrt:cry::S

ojjj hvað ég á dáið líf, það er bara ekkert að gerast hjá mér..þannig að hafið það bara gott og ég skal reyna að koma með eitthvað krassandi næst..

smjúts

FlameGirl


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 11:54:48 / flamegirl

vinnudýrið

já já nú er maður bara farinn að vinna..ekki seinna vænna:)

ég byrjaði á því að taka að mér afleysingar í póstinum í rétt um mánuð, það er einn starfsmaður að fara í veikindafrí og ég ætla að leysa hann af..ég er búin að vera núna síðan á miðvikurdaginn í síðustu viku og líst bara alveg þrælvel á þetta:) ótrúlega næs að rölta bara út í góða veðrið og fá sér göngutúr..

en svo vildu þeir jafnvel fá mig í frekari vinnu þarna hjá póstinum eftir að þessi starfsmaður kemur úr fríi, en ég er bara búin að ráða mig í aðra vinnu takk fyrir:) jább er að fara að vinna hjá JÁ 118:) líst líka bara alveg ljómandi vel á það, þó sýndist mér kallinn hjá póstinum ekkert vera sáttur með að ég ætlaði ekki að halda áfram eftir afleysingarnar, en það var bara það sem að var talað um í upphafi og því miður er ég ekki að vilja vinna þessa vinnu fyrir þessi lúsalaun sem að eru í boði...!

hvað er að? afhverju lætur fólk bjóða sér svona gubbulaun fyrir alveg slatta mikla vinnu...?

en já þannig að eftir rétt um 3 vikur byrja ég hjá JÁ..

mér finnst ferlega næs að vera komin í vinnu, einhvernvegin komin meiri regla á heimilið..í stað þess að ég og gabó séum hangandi hérna heima þá er hann komin á leikskóla til 14.00 og ég að vinna..rosa fínt

fór í bíó í gær með mömmu og ömmu á Will Smith..ohhh ég elska Will smith alltaf jafn mikið...það sem að maðurinn er bara hrikalega mikið æði:) og einhverntíman á sonur hans eftir að heilla stelpurnar upp úr skónum, bara kjúttí..

en já myndin var bara æði að mínu mati..

annars nenni ég ekki að pikka meira svo ég segi bara knús og kveðjur

FlameGirl


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 12:51:21 / flamegirl

blablabla

já Baldur þetta er ekkert grín að vera svona vel ritfær, ég meina fólk býst við miklu og stundum er erfitt að standa undir vætingum!! hafið þið velt fyrir ykkur að ég gæti verið gráti nær hérna vegna álags en samt fundist ég knúin til að setjast hérna niður og skrifa eitthvað skemmtilegt fyrir ykkur!! djö... mannvonska og sjálfselska er þetta alltaf hreint..

en ó well...sko þið eruð öll með einni tölu lélegir kommentarar!! hvar eru kommentin um gerifinnsmálið gott fólk, hafið þið bara ekkert áhuga á einu umdeildasta og óleysta morðmáli íslandssögunnar? nei ég meina maður spyr sig...

allavega ÉG las þetta sem að undirrituð skrifar...nú ganga ýmsar sögur á netinu um að hún sé nú ekki alveg með öllum mjalla, eða þá að hún sé það bara víst og að margt í bréfinu sé vel þess virði að athuga..hvort er rétt er ég ekki dómbær um..

en ég er samt pínu forvitin að vita afhverju þessar vísbendingar voru ekki skoðaðar, þó að hún væri gúgú..ég meina allavega til að hreinsa nafn herra X svona fyrst að hemilisfang hans er uppgefið og þar frameftir götunum..

ég hef alltaf sagt það að þetta er furðulegt mál, efast ekki um það í eina mínútu að einhverjir valdahrokar í landinu eigi þarna hlutdeild og liggi á vitneskju um þetta mál!!! ég meina kommon hvern langar ekki að vita hvað varð um Guðmund og Geirfinn?? ég þoli ekki svona óleyst mál...

og annað, svona af því að þið hafið ekkert lesið þetta og skiljið ekkert í þessu þusi mínu:) að þá er ég handviss um að sævar og hans félagar viðkomu þessu máli aldrei á einn einasta hátt og mikið vona ég þeirra vegna að þetta fari að skýrast svo að þau fái nú kannski uppreins æru sinnar á meðan þau eru enn á lífi!!

HVAÐ er annars að gerast hérna í augljóslega þessu drepsúra landi? það er ekki bara Dalvík sem að er rotið. eins og ég hélt...

ég meina það BREIÐAVÍK, Byrgið..STÚLKNAHEIMILIÐ og já ég veit bara varla hvað skal segja..en það er augljóst að valdaHROKAR..kúkablesar svo að ég sé málefnaleg og allt það hafa getað vaðið um landið eins og greifar í skjóli ríkisins...WTF...skil ekki alveg svona

og já kjósum þetta samt alltaf aftur og aftur..þetta hefur gengið svo frábærlega hingað til..djö..spillingarpakk

ég er ekkert að segja að aðrir væru betri, eða hefðu verið það..mér finnst samt tími til komin að fara að hið minnsta athuga hvort að það gæti orðið betra..ég skal vera fyrst manna til að kjósa bláu höndina til valda aftur ef að hlutirnir myndu ekki batna til hins betra:)

jæja þá er það komið í bili...og þið miklu bættari eftir þessa lesningu..haha

knús FlameGirl


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 00:33:53 / flamegirl

nanananabúbú..

ohhhh ég er svo frábær í að finna tiltil á bloggið mitt, jahh eða svona þannig!!

ég hef í sjálfu sér ekkert brjálað margt að segja, en hey þar sem að það eru allavega 5 heimsóknir hingað inn á dag þá er manni víst skyllt að uppfylla þarfir lesenda sinna, gera það ekki allir góðir rithöfundar?

svo hér er komið að mér...

síðasta helgi var eiginlega mjög skemmtileg, logi fékk frí eða réttasagt skipti um vakt við vinnufélaga sinn,og við fórum á þorrablót á svalbó. það var bara mjög gaman, mikið dansað og hlegið og auðvitað fengið sér eins og 2 eða 20 öl;) þið mynduð kannski ekki trúa næstu orðum mínum nema af því að þið vitið að ég lýg aldrei..en hann logi dansaði við mig..aha ég skal skrifa þetta aftur, jább hann dansaði sko við mig og meira að segja 2 sinnum..hahaha alveg frábært og gaf mér góðar vonir um að hann sýni sína bestu takta næst þegar haldið verður til veislu í sama húsi..

ég stúderaði salinn svona í leiðinni og leist eiginlega barasta mjög vel á þetta og það er ekki laust við að brúðkaupsplön séu í afslöppuðum og góðum farveg, ætla þó ekki að lofa að staðan verði eins þegar nær dregur:)

það er búin að vera veikindi hérna upp á síðkastið og fékk amó svona líka skemmtilega ælupesti..greyið svo fékk ég líka einhvern slappleika og ves en finnst það svona vera að fara af mér..

gabó er búin að vera á leikskóla núna í að verða 2 vikur og það gengur bara nokkuð vel, hann er að vísu ekki alveg orðin sáttur á að vera skilinn eftir og hengir sig svolítið á eina fóstruna en þetta kemur allt með kalda vatninu..

kannski maður ætti frekar að segja heita vatninu þar sem að við höfum verið í sjúklegu frosti hérna upp á síðkastið og í morgun hvað annað en 12°í -:$

jæja smjútsur ég ætla að benda ykkur hérna á link sem að ég mæli með að þið lesið, fjallar um hið "fræga" og óleysta mál guðmundar og geirfinns, þó aðallega geirfinns..endilega lesið og segið mér hvað ykkur finnst..

ég ætla að ræða þetta betur í næsta bloggi

http://mal214.googlepages.com/

smjúts FlameGirl


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 16:45:58 / flamegirl

Fréttir!!

Þær eru nú ekki beint upp á marga fiska núna..

við erum að vísu búin að panta ferðin til NYog Orlando..eins og ég var búin að segja ykkur..en svo erum við líka búin að panta hótelið í NY..það heitir Hudson og er víst svakalega glamúres hótel:) þrátt fyrir að herbergin séu nú kannski ekki þau stæðstu:) með hótelpöntuninni pöntuðum við miða á Monty Pyton sýninguna á Brodway og þyrluflug yfir NY...OMG hvað mig hlakkar til, pælið að sitja í þyrlu og skoða N ew York úr háloftunum...ahhh fiðringurinn er sko kominn..

svo er á döfinni að drífa í að panta flugið frá NY til Orlando og þá er þetta bara komið...lítið annað hægt að panta:) því við erum líka búin að panta húsið í Orlando..allt að smella saman:) jeríjeiiii

svo eru eddam mín og Óló búin að panta sína ferð og alveg ljóst að þau munu heiðra okkur með nærveru sinni allavega í orlando:) ekki leiðinlegir ferðafélagar það..:)

annars er lítið að frétta..ég á eiginlega að vera að þrífa núna:lol: því ég og logi erum hérna í svona samvinnu:) en ég fór hingað inn að þykjast vera að þrífa eitthvað í kringum tölvuna..múhhahahha

jæja smjútsur

FlameGirl


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 02:07:23 / flamegirl

dúrú

mér finnst ótrúlega skrítið orðið að koma til dalvíkur!

hvernig tilfinningar á maður að finna til bæjarins sem að maður ólst upp í? auðvitað veit ég að það er ekki til nein skyldutilfinning en maður hefði haldið að maður fyndi til ákveðinna tilfinninga í rótunum, þið vitið..

svo hefði maður líka haldið eftir að hafa alist upp í svona litlu bæjarfélagi að maður þekkti fólk þar, ætti vini þar og hefði staði til að fara í heimsókn á þegar maður færi þangað..

jú auðvitað hef ég fjölskylduna, en ég er að meina fyrir utan hana!

mér finnst þetta frekar skrítið, ég fann mig aldrei í þessu samfélagi alveg frá því að við fluttum þangað þegar ég var 10 ára..jújú ég átti vini og allt það en leið samt aldrei vel á dalvík og langaði alltaf að komast þaðan í burtu, sem og ég gerði strax eftir 10 bekk..var bara svo vitlaus að fara aftur:) en ekki aftur samt..ahha

held að ég hafi verið svona "milli" manneskja...upplifi mig þannig

s.s fólk skiptist í 2 hópa..kannski fleiri, er ekki viss, en allavega 2 hjá mér

vinsælu krakkanna og svo hina..málið er að ég var ekki vinsæl og það var allt í lagi..en ég átti vini í vinsæla krakka hópnum og langaði þar af leiðandi alltaf að komast þangað inn, en einhvernvegin fittaði samt ekki..sem betur fer segi ég í dag..

svo átti ég líka vini í "venjulega" krakka hópnum en var held ég alltaf svo mikið á "milli" að ég fór aldrei almennilega í annaðhvort..þannig að í dag þá sé ég að ég á engan svona fastan vinakjarna frá uppeldisstaðnum..

jújú ég á auðvitað vini þaðan..örfáa sem að ég er í sambandi við..kannski 3..svo á ég auðvitað kunningja sem að ég hitti, hef gaman af að spjalla við en that´s it..

þið megið ekki misskilja bloggið og halda að ég sé að væla hérna yfir að eiga enga vini:) heldur furða ég mig á að eiga engar rætur að rekja þangað..fyrir utan famelíið..

það er eitthvað við dalvík sem að fær mér hreinlega til að líða illa..veit ekki nákvæmlega hvað en mér finnst ég alltaf vera í vörn gagnvart þessu samfélagi og mér líkar það ekki..finnst reyndar þetta samfélag þarna alveg hreint gegnrotið ef að ég get orðið svo hvassorð..

en án þess að fara út í eitthvað hrikalegt skítkast varðandi dalvík:) haha því að líðan mín er í raun ekkert svo slæm kannski, að þá bara var ég að velta þessu fyrir mér..

annars er það að frétta að Óló hennar eddu sem að var með mér í borgó og í tíma hjá sigga íþró:) Ó-in eru fyrir óla og náttúrulega algjör einkabrandari:lol: en hann óli s.s ætlar að vera svo indæll og taka myndir í brúðkaupinu..smjútsí smjúts

kirkjan er back on, en núna er það akureyrarkirkja klukkan 16:00 kæru vinir:) og svavar fermingarpresturinn minn ætlar að festa okkur saman..ekki með böndum samt eða neitt þannig sko..:) gæti nú kannski bara talað við guðmund í byrginu ef að ég hefði áhuga á því..nei ojjj  sorrý varð:)

en hmm ekkert meir að frétta.

smjúts til ykkar

FlameGirl 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:52:28 / flamegirl

nætur draumalönd..darídarí og úúútlönd

ohhh já Gabríel eða eiginlega bara þau bæði voru falleg í nótt..og þá meina ég ekki falleg á góðan hátt:S þau voru bæði alltaf að vakna og það eina sem að mátti bjóða herra Gabríel var að sofa OFANÁ mér..rosa gaman..hann varð alveg spinnigal ef að ég svo mikið sem vogaði mér að færa hann hið minnsta..

þannig að ég var svona sitt á hvað með aðra löppina eða hausinn hangandi fram úr rúminu í nótt..var meira að segja búin að reyna að reisa mér virki úr sænginni:) en hann reif það nú niður á nótæm og kúrði í mömmukoti óboðinn:)'

ég ætla nú rétt að vona að þetta sé ekki eitthvað sem að hann fer að taka upp á að vilja hverja nótt, því ég er ekkert sérlega hrifinn af þessum endalausu truflunum á nóttunni og finnst árs pynting í þeim málum vera bara nokkuð gott..

annars er svona það að frétta að Gabríel byrjar á leikskóla 29 janúar og hlakkar okkur þvílíkt til..góð tilbreyting fyrir hann að fá að leika með öðrum börnum á daginn...

svo er búið að panta brúð/sumarferðina..haldið verður til New York þann 20 Júlí og verður stoppað þar í 3 daga..svo verður flogið þaðan þann 23 júlí yfir til Orlando og verður stoppað þar í 10 daga eða til 2 ágúst..þá verður flogið heim til íslands..vonandi brúnn og sæll:) svona eins brún allavega og ég get orðið:)

jæja smjútsur nenni ekki meir

knús FlameGirl


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4